Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fjölskylda úti í náttúru

Ársskýrsla Landsbankans 2025

Árið 2025 var tíðindamikið í rekstri bankans, hvort sem litið er til nýjunga í þjónustu, framfara í stafrænum lausnum eða til árangurs við fjármögnun bankans. Hjá okkur er ánægja viðskiptavina í fyrsta sæti og það er okkur mikils virði að ánægja viðskiptavina með þjónustuna er mikil og vaxandi. Markmið okkar er að jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og að traustur rekstur bankans skili varanlegum verðmætum fyrir viðskiptavini og hluthafa til framtíðar. 

Viðskiptavinir sem spara í appi
0
0,0%
Söfnun á Aukakrónum
0 milljónir
0,0%
Heimsóknir í appið
0 milljónir
0,0%
Útlán til fyrirtækja
0 ma.kr.
0,0%
Eignir í stýringu
0 ma.kr.
0,0%
Heildareignir
0. ma.kr.
0,0%
Einfaldara

Tryggingarnar eru í appinu

Við bættum tryggingum við appið og viðskiptavinir geta safnað Aukakrónum þegar þeir greiða fyrir tryggingarnar hjá TM. 

88%

einstaklinga í viðskiptum nota Landsbankaappið

Öruggara

Með öflugum netvörnum og svikavakt tókst í 75% tilfella að koma í veg fyrir tjón hjá viðskiptavinum.

Árangur

Upp í 25% hlutdeild

Færsluhirðingu Landsbankans var hleypt af stokkunum árið 2023 og hefur nú náð um 25% markaðshlutdeild. Hraður vöxtur endurspeglar hæfni til að fara inn á ný þjónustusvið með góðum árangri.

85%

íbúðalána eru afgreidd rafrænt

Texti

64,2%

af erlendri fjármögnun er græn

Jón Þorvarður Sigurgeirsson, formaður bankaráðs

„Efnahagsreikningur bankans er traustur og lánshæfismatið gott. Bankinn getur því í senn stutt við stór fyrirtæki sem fjármagna umfangsmiklar fjárfestingar og lítil og meðalstór fyrirtæki sem þurfa lægri lánafyrirgreiðslu. Staða bankans sem öflugasta fyrirtækjabankans sést svart á hvítu í bókum hans.“

Ávarp formanns bankaráðs
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri

„Landsbankinn hefur þann tilgang að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð.  Það þýðir að rekstur bankans sé góður, öruggur og skilvirkur og að hann standi styrkum fótum til langs tíma. Þannig erum við best í stakk búin til að styðja við viðskiptavini og vera góð fjárfesting fyrir hluthafa bankans.“

Ávarp bankastjóra

Hagnaður Landsbankans á árinu 2025 nam 38 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 37,5 milljarða króna á árinu 2024. Arðsemi eiginfjár eftir skatta var 11,6% á árinu 2025, samanborið við 12,1% arðsemi árið áður.

Hagnaður (ma. kr.)
38,0
Arðsemi eiginfjár
11,6%
Eiginfjárhlutfall
24,8%
Hjón úti í náttúrunni
Jákvæð áhrif á samfélagið  

Við erum leiðandi í sjálfbærni og metnaðarfullur þátttakandi í umræðunni um fjármál. Við stuðlum að uppbyggingu og framþróun í samfélaginu með ýmsum hætti. 

Aðgengileg og persónuleg

Við bjóðum framúrskarandi stafrænar lausnir en líka mannlega þjónustu og ráðgjöf, hvort sem er hjá öflugu þjónustuveri eða í útibúum um allt land.  

Auðveldari og alhliða 

Við héldum áfram að auka gæði og öryggi stafrænnar þjónustu bankans. Nýr fyrirtækjabanki leit dagsins ljós og appið varð enn betra.