Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Metnaður og þróun í mannauðsmálum 

Kvennaárið 2025 setti mark sitt á mörg mannauðsverkefni á árinu. Á fyrri hluta árs var greint frá því að Landsbankinn yrði bakhjarl UN Women og í kjölfarið var kynnt fræðsluröð þar sem jafnrétti og fjölbreytni voru tekin til umfjöllunar í sinni víðustu mynd. 

Á haustmánuðum var birt uppfærð mannauðsstefna þar sem jafnréttismálum var gert hærra undir höfði en áður og áhersla lögð á inngildingu. Fram að því hafði Landsbankinn fjallað um jafnréttismál í þremur aðskildum stefnum, mannauðsstefnu, jafnréttisstefnu og jafnlaunastefnu. Með uppfærslunni var framsetningin einfölduð, áherslur skýrðar og jafnrétti og fjölbreytni gerð sýnilegri sem þverlæg viðfangsefni í mannauðsstarfi bankans. Áherslur stefnunnar voru mótaðar í samstarfi við vinnuhóp skipaðan starfsfólki úr ólíkum einingum bankans. 

Uppfærð mannauðsstefna styður jafnrétti 

Hlutföll kynja í bankanum eru jöfn og hafa verið það um nokkurt skeið, þó halli myndist í tilteknum störfum og starfaflokkum. Við starfslok og skipulagsbreytingar er markvisst hugað að þessum hlutföllum, með það að leiðarljósi að stuðla að jafnvægi til lengri tíma, jafnframt því að tryggja faglegt og gagnsætt ráðningarferli. Þróun á þessu sviði er því eðli málsins samkvæmt hæg, en stöðugt er fylgst með stöðu mála og áhrifum aðgerða. 

Innleiðing uppfærðrar mannauðsstefnu felur jafnframt í sér skýrari ramma um eftirfylgni og reglubundið mat á stöðu jafnréttismála. Áhersla verður lögð á að fylgjast með þróun kynjahlutfalla, jafnlaunamála og þátttöku í fræðslu og starfsþróun, þannig að jafnrétti og fjölbreytni verði áfram virkur hluti af daglegri starfsemi og ákvarðanatöku bankans. 

Starfsánægja  

Landsbankinn fylgist vel með ánægju og líðan starfsfólks og leggur fyrir að lágmarki þrjár kannanir ár hvert þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að koma upplifun sinni á framfæri. Öll markmið sem tengjast mannauðsmælingum náðust á árinu. Heildaránægja starfsfólks hefur einungis einu sinni mælst hærri en hún mældist í október. Í könnuninni staðfestir 95% starfsfólks að það er mjög eða nokkuð sammála fullyrðingum um að vera ánægt með fyrirtækið sem vinnustað.  

Viðhorf starfsfólks til innra eftirlits og áhættumenningar er kannað árlega. Niðurstöður benda til að þekking starfsfólks á reglum sem gilda um störf þeirra sé mjög góð, en 97% telja sig þekkja vel til. Á árinu var lögð sérstök áhersla á að skerpa á verklagi og reglum um skyldufræðslu til að tryggja samræmi, gæði og eftirfylgni. Verkefnið fól í sér að skilgreina með skýrum hætti hvaða fræðsla telst skylda, hverjir bera ábyrgð á henni og hvernig þátttöku er fylgt eftir. Verkefnið styður við áhættumenningu vinnustaðarins.  

Undirbúningur starfsfólks TM fyrir nýtt vinnuumhverfi 

Verkefni sem tengdust innleiðingu TM í starfsumhverfi Landsbankans voru fyrirferðarmikil á árinu. Mikil áhersla var lögð á góða upplýsingagjöf til starfsfólks strax frá upphafi, þjálfun í hvað verkefnamiðað vinnuumhverfi felur í sér ásamt fræðslu og þjálfun um vörur, þjónustu og söluhæfni. Haldnar voru fjórar vinnustofur, Stillum saman strengi, fyrir starfsfólk TM þar sem það var undirbúið fyrir vinnu í verkefnamiðuðu vinnurými og flutning í ný húsakynni í miðbænum. Fjallað var um áskoranir sem fylgja umfangsmiklum breytingum og leiðir til að viðhalda jákvæðum samskiptum og hugarfari. Þátttaka var góð og tók 85% starfsfólks TM þátt.  

Umfangsmikil sérsniðin rafræn fræðsla var útbúin til að styðja við breytingarnar og skýra vörur og þjónustu beggja fyrirtækja. Markmiðið er að allt starfsfólk hafi heildstæða mynd af lausnum bæði TM og bankans. Á árinu fór jafnframt fram markviss þjálfun þar sem sérfræðingar frá TM þjálfuðu hóp starfsfólks bankans sem tryggingasöluráðgjafa og allri framlínu bankans stóð til boða grunnfræðsla í þjónustu vegna trygginga. 

Starfsdagur og stjórnendamót  

Að jafnaði er haldinn starfsdagur annað hvert ár og er þá öllu starfsfólki Landsbankans boðið til fundar og skemmtunar. Áherslan á starfsdegi ársins 2025 var á liðsheild og sameiginlegan árangur Landsbankans, TM og Landsbréfa. Þar var farið yfir stóru línurnar í lykilmarkmiðum næsta árs þar sem sala trygginga og þjónustutekjur verða áhersluverkefni. Viðburðurinn var haldinn í Hörpu og Reykjastræti 6 og heppnaðist afar vel. Húsnæði Landsbankans sýndi enn og aftur hve vel það hentar bæði sem vinnustaður og til að halda vel utan um hópinn þegar gera á sér glaðan dag.   

Í kjölfar starfsdags var haldið stjórnendamót þar sem allir stjórnendur bankans, Landsbréfa og TM hittust og köfuðu dýpra í markmið og tækifærin sem Landsbankinn hefur. Stjórnendur ólíkra eininga miðluðu einnig reynslu sinni af árangri og tækifærum. Stjórnendur tóku virkan þátt í vinnu á borðum þar sem þau ræddu hvernig teymi þeirra gætu lagt sitt af mörkum til að styðja við markmið bankans. Dagurinn var vel heppnaður og einkenndist af góðri samvinnu og skýrum áherslum á sameiginlega framtíðarsýn samstæðunnar.  

Á deginum var kynntur nýr vettvangur fyrir stjórnendur til að sækja sér ráðgjöf og þjálfun hjá Kara Connect. Til viðbótar við framboðið hjá Kara Connect bjóðast stjórnendum reglulega stjórnendaþjálfun og styttri námskeið til að efla sig í hlutverki stjórnunar. Viðburðir eins og starfsdagur og stjórnendamót eru mikilvægir í starfseminni til að stilla saman strengi og fá tækifæri til að fagna góðum sigrum, sem og að huga að framtíðinni.   

Mannauðsstefna

Landsbankinn er eftirsóttur vinnustaður. Við leggjum áherslu á að skapa skemmtilegt vinnuumhverfi þar sem heilbrigð liðsheild þrífst við jákvæða og árangursdrifna menningu.

Mannauðsstefna Landsbankans.

Starfsþróun og fræðsla 

Eftir öfluga uppbyggingu fræðslustarfs undanfarin ár var meðvitað lagt upp með minna framboð fræðslu en áður. Á móti var lengri námskeiðum fjölgað og vinsælar vinnustofur endurteknar vegna mikillar aðsóknar. Framboðið spannaði áfram sérhæfða, starfstengda færni, persónulega færni og allt þar á milli. Form fræðslunnar var jafnframt fjölbreytt og byggði t.d. á stuttum fyrirlestrum, vinnustofum, námskeiðum og rafrænni fræðslu.  

Fræðsluáætlanir eru unnar í samræmi við stefnu, lykilmarkmið og viðskiptaáætlanir bankans og miða að því að mæta raunverulegum þörfum í starfsemi og rekstri. Við leggjum áherslu á að aðlaga fræðslu að síbreytilegu starfsumhverfi og vaxandi þörf fyrir nýja færni.  

Framboð 

Árið 2025 var samtals 71 viðburður á dagskrá undir valkvæðri fræðslu, 38 á vorönn og 33 á haustönn. Þegar skipting eftir markhópum er skoðuð má sjá að 36 viðburðir voru í boði fyrir allt starfsfólk, 31 viðburður var sérsniðin fræðsla og 4 viðburðir teljast til stjórnendaþjálfunar. 

Á hverju ári er boðið upp á fjölbreytt úrval rafrænnar fræðslu en stærsta hluta rafrænu fræðslunnar útbúum við sjálf með sérfræðingum bankans og náum þannig að sníða hana fullkomlega að okkar markhópum. Við hönnun rafrænnar fræðslu er lögð áhersla á að byggja á efni sem á við til lengri tíma og þarfnast ekki tíðrar uppfærslu. Fræðsluefnið er því yfirleitt aðgengilegt í fræðslukerfinu í ákveðinn tíma en á hverju ári er nýrri rafrænni fræðslu jafnframt bætt við eða eldra efni endurskoðað og uppfært eftir þörfum. Í ár voru sjö ný rafræn námskeið birt og fimm uppfærð.  

Til að auðvelda starfsfólki yfirsýn yfir framboð er fræðslunni skipt upp í flokka. Flokkarnir endurspegla og byggja undir stoðirnar þrjár í stefnu Landsbankans: ánægðir viðskiptavinir, stöðug framför og við elskum árangur, sem og mannauðsstefnuna. 

Fyrir utan fræðsluflokkana erum við með skyldufræðslu, eins og áður kom fram. Fræðsla sem er skylda fjallar um lagalegar og siðferðilegar skyldur bankans og starfsfólks. Hún stuðlar að því að allt starfsfólk hafir skýran skilning á ábyrgð, reglum og viðmiðum sem styðja við traust og áreiðanleika í starfsemi bankans.  

Virkni og þátttaka 

Það er ánægjulegt að sjá að þátttaka í fræðslu (fjöldi þátttakanda í viðburðum) jókst á milli ára þrátt fyrir minna framboð en árið 2024. Virkni fræðslu (hlutfall starfsfólks sem sótti fræðslu, bæði rafræna og viðburði á staðnum) helst líka áfram mikil á árinu en sé litið til fræðslu sem er ekki skyldufræðsla sótti 90% starfsfólks sér fræðslu samanborið við 94% árið 2024. Samanburður milli ára skekkist að hluta vegna fjölgunar starfsfólks með innkomu um það bil 100 starfsmanna frá TM en þrátt fyrir það er virkni áfram mikil og nálægt fyrra ári.   

Starfsfólk sótti að meðaltali 4,9 valkvæða fræðsluviðburði á mann. Sé litið til kynjaskiptingar má sjá að þátttaka í valfrjálsri fræðslu er nokkuð jöfn á milli kynja, eða 92% hjá konum og 89% hjá körlum.

Þátttaka í valkvæðri fræðslu er hluti af framvindumælikvörðum undir stoðinni stöðug framför. Markmiðið er að 45% starfsfólks sæki valfrjálsa fræðslu yfir árið. Að meðaltali hafði 44,7% starfsfólks sótt slíka fræðslu í lok desember 2025.  

Mannauðsmál eru lykilþáttur í allri starfsemi Landsbankans og hafa afgerandi áhrif á árangur. Með skýrum áherslum á þróun, jafnrétti og vellíðan starfsfólks er lagður traustur grunnur að sterkri og sjálfbærri vinnustaðamenningu til framtíðar.