Vefkökur
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.
Nánar um vefkökur
Stjórn og skipulag
Traustur rekstur og ánægðir viðskiptavinir
Traust er lykilþáttur í allri starfsemi bankans hvort sem horft er til samskipta við viðskiptavini, birgja, samstarfsfólk eða átt er við rekstur bankans og almenna starfsemi. Viðskiptavinir geta treyst því að við séum til staðar og að rekstur bankans sé í öruggum höndum.

Landsbanki nýrra tíma
Stefna Landsbankans, Landsbanki nýrra tíma, byggir á einföldu markmiði: að einfalda líf viðskiptavina með aðgengilegri, öruggri og mannlegri fjármálaþjónustu. Árið 2025 sýndi í verki að stefnan virkar.

Stjórnarhættir
Góðir stjórnarhættir leggja grunninn að traustum samskiptum hluthafa, bankaráðsmanna, stjórnenda, starfsfólks, viðskiptavina og annarra hagaðila og stuðla að hlutlægni, heilindum, gagnsæi og ábyrgð í stjórnun bankans.


Ávarp formanns bankaráðs
„Efnahagsreikningur bankans er traustur og lánshæfismatið gott. Bankinn getur því í senn stutt við stórfyrirtæki sem fjármagna umfangsmiklar fjárfestingar og lítil og meðalstór fyrirtæki sem þurfa lægri lánafyrirgreiðslu. Staða bankans sem öflugasta fyrirtækjabankans sést svart á hvítu í bókum hans. “

Ávarp bankastjóra
„Landsbankinn hefur þann tilgang að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð. Það þýðir að rekstur bankans sé góður, öruggur og skilvirkur og að hann standi styrkum fótum til langs tíma. Þannig séum við best í stakk búin að styðja við viðskiptavini til langs tíma og vera góð fjárfesting fyrir hluthafa bankans. “