Vefkökur
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.
Nánar um vefkökurÁvarp bankastjóra
Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2025 er gott og endurspeglar traustan og stöðugan rekstur í krefjandi rekstrarumhverfi.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri
Arðsemi eiginfjár bankans á síðasta ári var 11,6% sem var í samræmi við áætlanir og kostnaðarhlutfallið var 34,3% sem er með því lægsta sem þekkist meðal sambærilegra banka á heimsvísu. Hagnaður var 38 milljarðar króna og í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans mun bankaráð leggja til við aðalfund að greiða um 50% af þeirri fjárhæð í arð til hluthafa, eða um 19 milljarða króna. Bankaráð hefur jafnframt til skoðunar að leggja til sérstaka arðgreiðslu á aðalfundi.
Þrátt fyrir efnahagsumhverfi sem því miður einkennist af þrálátri verðbólgu og háu vaxtastigi, sjáum við að fjárhagsleg staða heimila og fyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann er almennt sterk.
Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og að traustur rekstur bankans skili varanlegum verðmætum fyrir viðskiptavini og hluthafa til framtíðar.
Traust fjárhagsstaða
Það er til marks um trausta fjárhagsstöðu bankans að alþjóðlega matsfyrirtækið S&P hækkaði í fyrravor lánshæfiseinkunn bankans í A- með stöðugum horfum. Betri lánshæfiseinkunn skiptir ekki síst máli á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum og styður við samkeppnishæfni bankans. Á árinu nýttum við hagfelldar aðstæður á erlendum mörkuðum til að gefa út skuldabréf í erlendri mynt fyrir jafngildi samtals um 135 milljarða króna, miðað við núverandi gengi. Útgáfurnar voru m.a. nýttar til að greiða upp eldri og óhagkvæmari fjármögnun, en einnig til að styrkja lánshæfismat og auka útlánagetu bankans.
Sjálfbærni er hluti af kjarnastarfsemi
Landsbankinn hefur unnið markvisst að sjálfbærni síðan árið 2011. Líkt og með önnur umbreytingarverkefni kemur að því að verkefnið annað hvort klárast eða verður hluti af reglubundnum og sjálfsögðum hluta starfseminnar. Sjálfbærni er í eðli sínu ekki verkefni sem klárast heldur þarf stöðugt að vinna að málaflokknum. Málaflokkurinn er nú kominn á þann stað í bankanum að hann er orðinn fastur hluti af kjarnastarfseminni þvert á svið hans. Þess vegna er tímabært að þessi ársskýrsla Landsbankans, sem til skamms tíma bar heitið árs- og sjálfbærniskýrsla, fái aftur sitt fyrra heiti. Það breytir engu um að í ársskýrslunni er fjallað ítarlega um það sem fréttnæmt er í sjálfbærnistarfi ársins auk þess sem ítarlegt sjálfbærniuppgjör er gefið út með ársreikningi bankans.
Tryggingarnar komnar í appið
Eftir að bankinn lauk við kaupin á TM í febrúar hefur verið unnið markvisst að því að samþætta tryggingar inn í þjónustuframboð bankans.
Tryggingarnar eru komnar í Landsbankaappið og nú geta viðskiptavinir safnað Aukakrónum þegar þeir greiða fyrir tryggingarnar sínar hjá TM. Þetta eru fyrstu skrefin í átt að samþættri banka- og tryggingaþjónustu og á næstunni munum við sækja enn frekar fram á tryggingamarkaði.
Rekstur TM gekk vel og félagið greiddi 2,5 milljarða króna í arð til Landsbankans á árinu.
Í þessum breytingum á starfseminni skiptir miklu máli að Landsbankinn býr yfir einstaklega sterku og víðtæku þjónustuneti. Sú ákvörðun bankans að viðhalda og þróa útibúanetið, sem samtals telur 34 útibú og afgreiðslur, og tengja það við aðra þjónustu, ekki síst okkar öfluga þjónustuver, þýðir að bankinn hefur meiri slagkraft og er í betri stöðu til að veita framúrskarandi þjónustu um allt land. Við finnum að viðskiptavinir meta þessa nálgun mikils og þeir nýta sér þjónustuna í ríkum mæli. Sem dæmi má nefna að við skráðum alls um 863.000 heimsóknir í útibú í fyrra og á sama tíma svaraði þjónustuverið rúmlega 250.000 símtölum og yfir 100.000 tölvupóstum. Þessi stefna bankans hefur skilað sér í aukinni ánægju viðskiptavina, eins og sést á því að Landsbankinn var áfram efstur viðskiptabankanna í Íslensku ánægjuvoginni og hækkaði á milli ára.
Vel heppnaðar nýjungar í þjónustu
Landsbankinn hefur stutt við uppbyggingu atvinnulífs um allt land með útlánum og öflugri þjónustu við fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Nær öll aukning á útlánum ársins 2025 var til fyrirtækja, sem nálgast nú 1.000 milljarða í heildina. Áhersla á þróun stafrænnar fyrirtækjaþjónustu skilaði sér í aukinni notkun tæknilausna bankans á síðasta ári, ekki síst eftir endurnýjun á netbanka fyrirtækja og innleiðingu nýrra lausna. Árangur færsluhirðingar Landsbankans, sem var hleypt af stokkunum árið 2023, sýnir að við getum farið inn á ný þjónustusvið með góðum árangri. Nýjungar í þjónustu og aukin umsvif á öðrum sviðum leiddu til þess að þjónustutekjur bankans jukust um 10% á síðasta ári.
Undir lok síðasta árs kvað Hæstiréttur upp dóma í vaxtamálum, m.a. tveimur málum sem vörðuðu vaxtaákvæði Landsbankans. Við lögðum áherslu á að bregðast hratt við til að draga úr óvissu á lánamarkaði og vorum fyrsti lánveitandinn til að kynna nýtt lánaframboð, m.a. nýja útfærslu af óverðtryggðum lánum með fasta vexti til eins árs í senn. Við sáum okkur ekki annað fært en að takmarka framboð af verðtryggðum íbúðalánum við fyrstu kaupendur og bjóða fasta vexti með styttri lánstíma en áður. Þetta hefur gert það að verkum að í þeim tilvikum þegar það skiptir lántaka mestu máli að greiðslubyrði sem sé allra lægst erum við ekki eins samkeppnishæf og áður. Við bjóðum aftur á móti mjög samkeppnishæf kjör á óverðtryggðum lánum, auk þess sem viðskiptavinir hafa aðgang að vandaðri ráðgjöf um allt land.
Traustur banki fyrir farsæla framtíð
Það er mikilvægt að betra jafnvægi náist í efnahagslífinu, að verðbólga lækki og þannig sé hægt að lækka vaxtastigið í landinu. Vonandi skapast aðstæður til þess sem fyrst. Það yrði kærkomið fyrir viðskiptavini bankans sem eru með lán og myndi gefa fyrirtækjum aukið svigrúm til fjárfestinga og stuðla bæði að auknum hagvexti og fleiri tækifærum til framtíðar.
Landsbankinn hefur þann tilgang að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð. Það þýðir að rekstur bankans sé góður, öruggur og skilvirkur og að hann standi styrkum fótum til langs tíma.
Þannig erum við best í stakk búin til að styðja við viðskiptavini og vera góð fjárfesting fyrir hluthafa bankans. Næstu ár munu einkennast af því að efla og treysta sambönd við viðskiptavini og halda áfram að þróa þjónustu okkar í þá átt að hún sé lipur, þægileg og örugg. Viðskiptavinir eiga að sjá skýrt virði í því að vera með stóran hluta sinnar fjármálaþjónustu hjá Landsbankasamstæðunni.