Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Alhliða þjónusta við fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum

Landsbankinn er stærsti fyrirtækjabanki landsins með um 40% hlutdeild bankakerfisins á Íslandi í útlánum til fyrirtækja og um helming af útlánum í mikilvægum atvinnugreinum á borð við sjávarútveg og byggingariðnað. Útlán til fyrirtækja héldu áfram að aukast á árinu og munu bráðlega kljúfa þúsund milljarða múrinn.  

Markaðshlutdeild Landsbankans á fyrirtækjamarkaði er 33,0% þegar litið er til fyrirtækja sem skila ársreikningi. 

Ör vöxtur færsluhirðingar Landsbankans hélt áfram og við hófum að bjóða fyrirtækjum upp á tryggingar hjá TM. Fyrirtæki geta nú nálgast alla fjármálaþjónustu sem þau þurfa á að halda hjá okkur. 

Leiðandi í útlánum til sjávarútvegs 

Stefna Landsbankans er að vera áfram leiðandi í fjármögnun í íslenskum sjávarútvegi. Við stefnum á að auka útlán til greinarinnar samhliða auknum fjárfestingum.   

Útlán til sjávarútvegs eru um 20% af heildarútlánum bankans til fyrirtækja og er vilji til að hækka það hlutfall en þau stóðu í 190 milljörðum króna í lok árs 2025. Landsbankinn er með sterka markaðshlutdeild í sjávarútvegi og nýtir styrkleika sína, sem felast í miklum sveigjanleika og viðbragðsflýti, til að halda stöðu sinni þrátt fyrir aukna samkeppni frá erlendum fjármálastofnunum sem geta í krafti stærðar og lægri skatta boðið hagstæðari kjör. 

Árið 2025 var fremur gott ár í íslenskum sjávarútvegi og umtalsvert betra en árið 2024. Það sem skýrir bætta afkomu er að veiðar og vinnsla gengu almennt vel, heimilt var að veiða loðnu á árinu og fiskverð var í hæstu hæðum.   

Hækkun veiðigjalda kemur til með að hafa umtalsverð áhrif á sjávarútveg á næsta ári. Félögin munu leita leiða til að hagræða í rekstri og fyrirséð er að nýfjárfestingum verði slegið á frest. Auk þess er staða á sameiginlegum uppsjávarstofnum á borð við makríl og kolmunna ekki góð og búast má við samdrætti í veiðum. Hvoru tveggja mun draga úr eftirspurn eftir lánsfé, allavega tímabundið. 

Sjókvíaeldi stendur enn frammi fyrir miklum áskorunum. Félögin hafa flest hver náð tökum á framleiðslunni en afurðaverð á laxi er lágt og stærstan hluta ársins 2025 var það undir framleiðslukostnaði. Framleiðsla ársins 2025 var um 50.000 tonn sem er svipað og árið áður. Áherslur næstu missera þurfa að vera á að ná stöðugleika í framleiðslu fremur en að auka magn.  Uppbygging í landeldi heldur áfram með mjög miklum fjárfestingum. 

Vöxum með ferðaþjónustunni 

Landsbankinn er nokkuð umsvifamikill í útlánum til ferðaþjónustu. Bókfærð staða útlána er 110 milljarðar króna í árslok 2025 og helst stöðug á milli ára. Við stefnum að því að vaxa með atvinnugreininni á næstu árum en taka þarf hæg og örugg skref til vaxtar þar sem greinin er sveiflukennd eins og dæmin sanna.   

Árið 2025 varð lítils háttar samdráttur í komu erlendra ferðamanna til Íslands. Skýringanna er annars vegar að leita í háu raungengi sem veikir samkeppnisstöðu Íslands gagnvart helstu samkeppnislöndum, svo sem Noregi og Finnlandi. Hins vegar hafði fall flugfélagsins Play áhrif þar sem dró úr framboði á flugi til landsins seinni hluta ársins. Auk þess má nefna háan vaxtakostnað og hækkandi launakostnað sem þrengir enn frekar að greininni.   

Áætlað er að fjöldi ferðamanna hafi verið 2,25 milljónir árið 2025 sem er í góðu samræmi við ferðamannaspá Greiningardeildar Landsbankans. Þrátt fyrir fækkun ferðamanna gengur rekstur í ferðaþjónustu almennt vel. Sameiningar og aukin samþætting hafa leitt til lægri kostnaðar og gert félögin betur í stakk búin til að takast á við breytingar og aukna samkeppni.   

Fjárfestingar voru umtalsverðar í greininni á árinu 2025, en þar er einkum um að ræða byggingu nýrra hótela á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi, auk fjárfestinga í náttúruböðum og baðlónum. Landsbankinn var sem áður traustur bakhjarl í mörgum spennandi verkefnum á árinu. 

Fjöldi ferðamanna og spá til 2028
2022 1.696.785
2023 2.224.036
2024 2.287.341
2025 2.250.000
2026 2.270.000*
2027 2.300.000*
2028 2.330.000*
*Spá Greiningardeildar Landsbankans

Alhliða þjónusta við fyrirtæki 

Framboð Landsbankans á þjónustu við fyrirtæki er afar fjölbreytt og árið 2025 bættu um 3.500 núverandi viðskiptavinir við sig nýjum þjónustuleiðum. Um 2.000 ný fyrirtæki komu í viðskipti við Landsbankann, auk fjölda einyrkja um allt land. Þá er hátt í helmingur nýrra viðskiptavina í færsluhirðingu nýir viðskiptavinir bankans. TM, dótturfélag Landsbankans, er umsvifamikið á tryggingarmarkaði og á árinu 2025 hófum við að bjóða viðskiptavinum okkar á fyrirtækjamarkaði tryggingar hjá TM.  

Viðskiptavinir á fyrirtækjamarkaði nýta sér stafrænar lausnir við sjálfsafgreiðslu í miklum mæli. Í heildina er sjálfsafgreiðsluhlutfall nær 90% og álíka hátt eða hærra í eftirfarandi þjónustuþáttum:

Stofnun innlánsreikninga
80,9%
Erlendar greiðslur
98,1%
Umsóknir um kreditkort
83,1%
Nýskráning viðskiptavina
91,0%

Leiðandi afl í færsluhirðingu   

Landsbankinn hefur á stuttum tíma orðið að leiðandi afli í færsluhirðingu á Íslandi, með um 25% markaðshlutdeild í lok árs 2025. Með nýjustu tækni, framúrskarandi þjónustu og öflugu sölu- og markaðsstarfi hefur vöxtur færsluhirðingar farið fram úr björtustu vonum.  

Árið 2025 varð þreföldun á fjölda færslna sem fóru í gegnum kerfi bankans miðað við árið á undan og velta færsluhirðingar Landsbankans þrefaldaðist einnig. Um 7.227 færslur fóru í gegnum kerfi bankans á hverjum klukkutíma allan sólarhringinn, en það gerir um 120 færslur á mínútu. Þá eru posar á vegum færsluhirðingar Landsbankans orðnir 3.300 talsins um allt land.  

Gögn tengd færsluhirðingu fyrirtækja eru nú í auknum mæli sótt með vefþjónustu sem býður upp á að bóka uppgjör beint inn í bókhaldskerfi viðkomandi fyrirtækis. Frekari framþróun færsluhirðingar er í fullum gangi og við munum halda áfram að gera kortaviðskipti skilvirkari, þægilegri og betri með því að bæta núverandi lausnir og eins kynna nýjar lausnir til leiks. 

Hærri útlán til fasteignafélaga  

Framan af árinu 2025 var mjög góður gangur á fasteigna- og byggingarmarkaði en er líða tók á árið fór að hægja á. Helstu skýringar eru háir vextir, þrengri lánþegaskilyrði fyrir kaupendur fasteigna og óvissa vegna dómsmála vegna vaxtabreytingaskilmála í íbúðalánum til neytenda. Fyrir vikið hefur sala dregist saman og fasteignamarkaðurinn verið við frostmark. Mikill samdráttur í sölu ásamt háu vaxtastigi setur byggingarverktaka í þrönga stöðu. Mikilvægt er að óvissan dragist ekki á langinn. 

Fasteignafélög hafa vaxið mjög undanfarin ár, bæði með innri og ytri vexti. Háir vextir og snúin staða á skuldbréfamörkuðum hafa fært fjármögnun fasteignafélaga inn til fjármálastofnanna, allavega tímabundið. Fjármálastofnanir, þ.m.t. Landsbankinn hafa notið góðs af því. Í árslok 2025 voru lán til fasteignafélaga alls 260 milljarðar króna og hafa aldrei verið hærri. Gera má ráð fyrir að útlán haldist stöðug næstu misseri en fari svo lækkandi með lækkandi vöxtum. 

Sem fyrr eru umsvifamestu verkefni Landsbankans í byggingargeiranum fjármögnun á stórum íbúðaverkefnum á höfuðborgarsvæðinu, í nágrannasveitarfélögum og á Akureyri. Auk þess fjármagnar bankinn byggingu atvinnuhúsnæðis en atvinnuhúsnæðið hefur gjarnan verið selt áður en framkvæmdir hefjast eða langtímaleigusamningur liggur fyrir um afnot. 

Í árslok var bókfærð staða útlána til þessa geira 190 milljarðar króna og hefur vaxið umtalsvert frá fyrra ári.   

Stór byggingarverkefni
44
verkefni
Minni byggingarverkefni
82
verkefni
Íbúðir sem við fjármögnum
3.520
íbúðir

Sterk staða í verslun og þjónustu 

Staða bankans í verslun og þjónustu er sterk og námu útlán til þessara atvinnugreina um 135 milljörðum króna í árslok 2025. Á síðustu fjórum árum hafa útlán aukist um 35 milljarða króna og fjöldi nýrra viðskiptavina bæst við á því tímabili. Til verslunar og þjónustu telst fjölbreyttur hópur viðskiptavina á sviði smásölu, flutninga, upplýsingatækni og annarrar þjónustu. 

Í auknu vöruframboði bankans, m.a. í tryggingum og færsluhirðingu, felast mikil tækifæri fyrir bankann til að auka hlutdeild sína enn frekar á þessum markaði og þá sérstaklega hjá litlum og meðalstórum félögum. 

Rekstur verslunar- og þjónustufyrirtækja sem eru í viðskiptum við bankann gekk almennt vel á árinu 2025 en ýmsar áskoranir eru fyrirsjáanlegar á komandi ári. Neyslu- og innkaupavenjur munu halda áfram að þróast og taka breytingum sem verslunar- og þjónustufyrirtæki verða að bregðast við en auk þess má búast við að tímabundnir erfiðleikar í iðnaði sem tengjast rekstrarstöðvun PCC á Bakka og bilun hjá Norðuráli á Grundartanga muni hafa áhrif á fyrirtæki sem þjónustað hafa þessa aðila. 

Mikið að gera í bíla- og tækjafjármögnun 

Talsverð aukning varð í sölu nýrra fólksbifreiða á árinu 2025 frá fyrra ári en hafa ber í huga að árið 2024 var sala lítil í öllu tilliti. Aukningin á milli ára nemur 42,3% og var salan á síðustu mánuðum ársins langt umfram meðaltal. Þetta má að miklu leyti rekja til breytinga á vörugjöldum bifreiða sem tóku gildi 1. janúar 2026. Breytingin hafði í för með sér talsverða hækkun á söluverði flestra bifreiða með bensín- og díselvélar, bæði hefðbundinna bíla og tengiltvinnbifreiða. Margir ákváðu að tryggja sér kaup á nýrri bifreið fyrir áramót og þá sérstaklega bílaleigur sem kaupa um 40% af öllum nýjum fólksbílum sem seldir eru á landinu. 

Þrátt fyrir þessa auknu sölu fólksbifreiða dró aðeins úr útlánum til fyrirtækja til bíla- og tækjafjármögnunar. Samdrátturinn nemur 5,4% á árinu og taldi lánasafnið 44,4 milljarða króna í lok árs 2025. 

Ráðgjöf vegna umfangsmikilla viðskipta 

Árið hjá Fyrirtækjaráðgjöf var afar fjölbreytt og annasamt. Fyrirtækjaráðgjöf annaðist ráðgjöf í mörgum stærstu viðskiptum ársins, bæði með skráð og óskráð félög. Fyrirtækjaráðgjöf var ráðgjafi fjármála- og efnahagsráðuneytisins við skipulagningu á markaðsettu útboði á eftirstandandi hlut ríkisins (45,2%) í Íslandsbanka. Fyrirtækjaráðgjöf var söluráðgjafi í hlutafjárhækkun Amaroq til erlendra og innlendra fjárfesta ásamt því að vera umsjónaraðili skráningar hlutanna til viðskipta í kauphöll. Þá veitti Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankanum ráðgjöf vegna kaupa bankans á TM. 

Verkefnastaða Fyrirtækjaráðgjafar hefur verið mjög góð. Það stefnir í að ýmis viðskipti verði leidd til lykta á komandi misserum og má þar merkja töluverða virkni á markaði óskráðra hlutabréfa. Einnig er Fyrirtækjaráðgjöf að vinna að undirbúningi fyrir skráningu tveggja fyrirtækja í Kauphöll, Stoða fjárfestingarfélags annars vegar og Bláa Lónsins hins vegar. Ef markaðsaðstæður leyfa verður árið fram undan einnig annasamt ár í skráningum. 

Sjáum fram á spennandi verkefni  

„Ég tók við sem forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar í árslok 2024. Á árinu 2025 var lögð áhersla á að móta og innleiða skýra sýn og stefnu fyrir Fyrirtækjaráðgjöf með áherslu á að styrkja markaðssókn ásamt því að skerpa á skipulagi og rekstri. Með reynslumiklu og samheldnu 12 manna teymi hefur framangreint gengið eftir áætlun, verkefnastaðan er sterk og útlit er fyrir að umsvif Fyrirtækjaráðgjafar verði umtalsverð á árinu 2026. 

Áhersla á að rækta samböndin 

Við leggjum sem fyrr mikla áherslu á áframhaldandi þróun lausna fyrir viðskiptavini. Margar nýjungar sem viðskiptavinir njóta góðs af komu fram á árinu, til dæmis í kortalausnum, og nokkrar spennandi nýjungar eru væntanlega á nýju ári. 

Öflugt þjónustuver fyrirtækja sinnti fjölmörgum erindum á árinu 2025. Í heildina afgreiddi þjónustuverið nærri 66 þúsund erindi.

37.425
símtöl
18.250
tölvupóstar
3.127
vefspjöll

Viðskiptavinir voru duglegir að notfæra sér mismunandi samskiptaleiðir og kunna vel að meta að geta náð í okkur þegar þeim hentar á þann hátt sem þeim hentar. Við leggjum auk þess mikla áherslu á að hafa frumkvæði að samskiptum við bæði núverandi og nýja viðskiptavini, bæði í gegnum síma og með heimsóknum. 

Nýr netbanki 

Á árinu var nýr netbanki fyrirtækja tekinn í notkun. Kynntar voru ýmsar nýjungar, t.d. sameiginlegt vinnuborð þar sem starfsfólk fyrirtækis getur unnið saman í rauntíma. Um miklar breytingar var að ræða og með samstilltu átaki starfsfólks og góðum ábendingum frá viðskiptavinum voru nýjungarnar innleiddar á mettíma. Nánar má lesa um nýjan netbanka fyrirtækja í kaflanum um stöðuga framför. 

Fjármálamót fyrirtækja vel sótt 

Í haust héldum við vel sótt fjármálamót í Reykjastræti þar sem eigendur og stjórnendur fjögurra fyrirtækja fjölluðu um það hvernig þeir nýta gögn til að bæta reksturinn. Þetta fjármálamót er liður í því að halda viðburði þar sem viðskiptavinir geta miðlað þekkingu og reynslu til annarra viðskiptavina. Arnheiður Klausen Gísladóttir, forstöðumaður á Fyrirtækjasviði, fór einnig yfir það hvernig Landsbankinn miðlar gögnum til sinna viðskiptavina og hvernig bankinn hagnýtir gögn til að búa til nýjar lausnir fyrir viðskiptavini og einnig til að bæta rekstur bankans.