Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Hjón úti í náttúrunni

Sjálfbærni og samfélag

Jákvæð áhrif á samfélagið 

Við erum leiðandi í sjálfbærni, metnaðarfullur þátttakandi í umræðunni um efnahagsmál og öflugur útgefandi fræðslu af ýmsum toga. Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og að vera eftirsóttur vinnustaður. 

Skýr markmið tryggja öflugt sjálfbærnistarf  

Árið 2025 unnum við áfram markvisst að sjálfbærnimarkmiðum okkar, héldum sjálfbærnidag Landsbankans í fjórða sinn, gerðum fyrsta mat okkar á áhrifum á líffræðilega fjölbreytni, áætluðum losun gróðurhúsalofttegunda frá útlánum í fimmta skiptið, endurnýjuðum Svansvottun mötuneytisins í nýju húsi og tókum þátt í viðskipta- og mannréttindahraðli Sameinuðu þjóðanna.  

Maður úti í náttúru

Skipuleg og skilvirk nálgun 

Við leggjum okkur fram við að þekkja umhverfisáhrifin af starfsemi okkar. Við höldum áfram að greina kolefnisspor okkar og áhrif á samfélagið.  

Metnaður og þróun í mannauðsmálum 

Mannauðsmál eru samofin öllum verkefnum og árangri Landsbankans. Metnaður og vöxtur starfsfólks myndar grunninn að þeirri árangursdrifnu vinnustaðamenningu sem einkennir bankann.   

Traustur bakhjarl fjölbreyttra verkefna 

Við stuðlum að uppbyggingu og framþróun í samfélaginu og leggjum okkur sérstaklega fram við að veita brautargengi ólíkum verkefnum og samtökum um allt land. Stefna bankans er að hafa jákvæð áhrif á samfélagið, bæði með beinum fjárstuðningi og virkri þátttöku.