Lánatryggingasjóðurinn Svanni
Við erum bakhjarl Svanna - lánatryggingasjóðs kvenna. Svanni veitir lán með lánatryggingum til fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna og er ætlað að efla atvinnulíf og hvetja til nýsköpunar. Svanni hefur verið í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu um árabil.
Hamborgartréð og fiskisúpan
Ljósin voru tendruð á 60 ára afmæli Hamborgartrésins þann 29. nóvember við hátíðlega athöfn á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn þar sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar lék jólalög við tréð. Að tendrun lokinni var gestum boðið að þiggja fiskisúpu í boði Brims í Landsbankanum við Reykjastræti. Jólasveinar og harmonikkuleikari skemmtu gestum og léku jólalög. Viðburðurinn var í boði Landsbankans, Faxaflóahafna, Brims, Hörpu, Hafnartorgs, Sjómannadagsráðsins og Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins.
Félagsstofnun stúdenta og Stúdentaráð HÍ
Farsælt samstarf hefur verið á milli okkar og Félagsstofnunar stúdenta (FS) annars vegar og Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) hins vegar. Saman höfum við staðið fyrir ýmsum verkefnum og viðburðum, m.a. fræðsluviðburðinum Fyrirtækið ég! sem haldinn var á Háskólatorgi.
UN Women
Landsbankinn var styrktaraðili UN Women á kvennaárinu 2025. Við styrktum sérstaklega March Forward herferðina sem dró athygli að bakslaginu sem orðið hefur í jafnréttismálum undanfarin ár og miðaði að því að skapa samtal og samstöðu um jafnrétti.
Háskólasjóður Eimskipafélagsins
Háskólasjóður h/f Eimskipafélags Íslands var stofnaður árið 1964 til minningar um þá Vestur-Íslendinga sem hlut áttu að stofnun Hf. Eimskipafélags Íslands og hefur markmið hans frá upphafi verið að styðja efnilega stúdenta við Háskóla Íslands. Frá árinu 2005 hefur sjóðurinn verið í umsjá Landsbankans en sama ár var samþykkt að verja ákveðnum hluta af eign hans til að styðja nemendur í rannsóknum við HÍ, einkum doktorsnema. Yfir 200 doktorsnemar á öllum fræðasviðum skólans hafa síðan notið stuðnings sjóðsins en hann er langstærstur styrktarsjóða Háskólans með eignir upp á fjóra milljarða króna. Frá því að farið var að greiða styrki úr sjóðnum með reglubundnum hætti árið 2006 nemur heildarúthlutun styrkja rúmum 1,9 milljörðum, en þar af voru greiddar 500 milljónir til byggingar Háskólatorgs á árunum 2006 og 2007.
Klasasamstarf í ferðaþjónustu
Við höfum verið aðili að klasasamstarfi í ferðaþjónustu frá upphafi samstarfsins árið 2012. Að klasasamstarfinu standa lykilfyrirtæki á sviði ferðaþjónustu, opinberir aðilar og fyrirtæki sem styðja við eða eiga samstarf við greinina. Helsta markmið þess er að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun innan ferðaþjónustunnar.
Íslenski sjávarklasinn
Á árinu hóf bankinn samstarf við Íslenska sjávarklasann. Samstarfið miðar að því að styðja við aukna verðmætasköpun í bláa hagkerfinu. Áhersla verður lögð á stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem vinna að lausnum á þeim áskorunum sem rótgrónari fyrirtæki standa frammi fyrir, auk þess að styðja við frumkvöðla. Landsbankinn kemur að verkefninu sem styrktaraðili, auk þess sem sjávarútvegsteymi bankans mun styðja við frumkvöðla með handleiðslu og ráðgjöf.
Örnin – framúrskarandi fyrirtæki
Líkt og undanfarin ár veitti Landsbankinn styrki til góðs málefnis í nafni allra þeirra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki. Að þessu sinni rann styrkurinn, fjórar milljónir, til Arnarsins. Minningar- og styrktarsjóðurinn Örninn býður upp á helgardvöl og samveru fyrir börn og unglinga sem misst hafa náinn ástvin. Öll sem koma að verkefninu gefa vinnu sína en í hópi sjálfboðaliða eru prestar, djáknar, guðfræðingar, nemar í félagsráðgjöf, sálfræðingar, matráðar, hárgreiðslufólk, tannlæknar, sjúkraþjálfarar og listamenn.
Almannarómur
Landsbankinn tekur þátt í og er kyndilberi verkefnis Almannaróms, Þín íslenska er málið. Markmið verkefnisins er að safna heimildum um íslenskunotkun fyrirtækja úr ýmsum greinum atvinnulífsins. Við viljum leggja okkar af mörkum til að efla íslenskuna og búa henni sterka framtíð í stafrænum heimi. Gögnin sem við leggjum til í risamálheild Almannaróms, miðlæga grunnstoð máltækni á íslensku, eru mikilvæg heimild um notkun fjármálahugtaka í fortíð og endurspegla einnig þróun íslenskunnar við örar breytingar í fjártækni, á sviði stafrænnar fjármálaþjónustu almennt og við notkun nýrra lausna á borð við gervigreind.