Árið einkenndist einnig af umfangsmiklum uppfærslum og breytingum á kerfum og gagnagrunnum og ýmsir kjarnainnviðir bankans voru endurnýjaðir.
Það er til marks um góðan árangur að útgáfum á appinu, netbankanum og fleiri tæknilausnum hélt áfram að fjölga. Árið 2025 voru útgáfurnar 15% fleiri en árið 2024 og um 90% fleiri en árið 2021. Skráðum atvikum, en þá er um að ræða einhvers konar truflun í rekstri tæknilausna, heldur áfram að fækka og voru þau um 50% færri árið 2025 en árið 2021.
Við erum byrjuð að hagnýta gervigreind með ýmsum hætti í starfsemi bankans, bæði í þjónustu til viðskiptavina en einnig í innri starfsemi og munum gera það enn frekar á næstu misserum og árum. Áhersla á rekstrarþol og öryggi verður áfram í fyrirrúmi sem og áhersla á hvers kyns öryggismál og svikavarnir.“




