Vefkökur
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.
Nánar um vefkökurLandsbanki nýrra tíma
Stefna Landsbankans, Landsbanki nýrra tíma, byggir á einföldu markmiði: að einfalda líf viðskiptavina með aðgengilegri, öruggri og mannlegri fjármálaþjónustu. Árið 2025 sýndi í verki að stefnan virkar. Traustur rekstur, ánægðir viðskiptavinir og öflug menning skiluðu mælanlegum árangri – fyrir viðskiptavini, starfsfólk, hluthafa og samfélagið allt.

Forsenda árangurs er að allir stefni í sömu átt. Landsbanki nýrra tíma liggur til grundvallar viðskiptaáætlunar bankans ár hvert og mótar það sem bankinn tekur sér fyrir hendur. Innleiðing stefnunnar hófst í ársbyrjun 2021. Landsbanki nýrra tíma styður með beinum hætti við tilgang Landsbankans sem er að vera traustur banki fyrir farsæla framtíð. Sú setning fangar vel kjarna bankans og á rætur sínar að rekja allt til stofnunar Landsbanka Íslands árið 1886.

Við byggjum á trausti
Gildi Landsbankans er traust. Traust er lykilþáttur í allri starfsemi bankans hvort sem horft er til samskipta við viðskiptavini, birgja, samstarfsfólk eða átt er við rekstur bankans og almenna starfsemi. Viðskiptavinir geta treyst því að við séum til staðar og að rekstur bankans sé í öruggum höndum.
Þrjár stoðir stefnunnar
Stefnan er studd af þremur stoðum sem byggja upp þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru til að ná framúrskarandi árangri. Stoðirnar snúast um ánægða viðskiptavini, stöðuga framför og árangur.

Ánægðir viðskiptavinir
Landsbankinn leggur ríka áherslu á að vera þar sem viðskiptavinir eru, með þjónustu sem er einföld, aðgengileg og áreiðanleg.
Samþætting TM trygginga inn í þjónustuframboð bankans er enn eitt dæmi um hvernig Landsbankinn einfaldar líf viðskiptavina. Tryggingar TM eru nú aðgengilegar í Landsbankaappinu og viðskiptavinir geta safnað Aukakrónum með tryggingaviðskiptum sínum. Þetta eru fyrstu skref Landsbankans í átt að samþættri banka- og tryggingaþjónustu.
Vörumerki bankans mælist í sérflokki samkvæmt EMC-markaðsrannsóknum og markaðshlutdeild helst sterk.
Samspil stafrænnar þjónustu og öflugs þjónustunets um allt land birtist skýrt í ánægju viðskiptavina: Landsbankinn var áfram efstur viðskiptabankanna í Íslensku ánægjuvoginni. Bankinn hækkaði á milli ára og hefur ekki mælst hærri í tæplega 20 ár.
Stöðug framför
Stöðugur og traustur rekstur ásamt góðum efnahag eru forsenda þess að skapa rými til framfara þar sem starfsemin verður stöðugt snjallari. Niðurstöður ársins 2025 endurspegla traustan og stöðugan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi.
Lánshæfiseinkunn bankans hjá S&P hækkaði, samkeppnisstaða á alþjóðlegum fjármálamörkuðum styrktist og öll fjárhagsleg markmið bankans náðust. Kostnaðarhlutfall var 34,4%, sem með því lægsta sem þekkist meðal sambærilegra banka á heimsvísu, þrátt fyrir að samhliða sé unnið að fjölmörgum verkefnum til að treysta rekstur bankans og tryggja með sem bestum hætti stöðugleika í fjármálaþjónustu.
Við elskum árangur
Landsbankinn byggir á fólkinu sem þar starfar. Við elskum árangur vísar í persónulegan árangur en líka sameiginlegan árangur sem jákvæður og lausnamiðaður hópur starfsfólks þvert á bankann nær og birtist í framúrskarandi þjónustu.
Við vitum að ekkert gerist nema með góðu fólki og því fjárfestum við markvisst í starfsfólki, þekkingu og menningu sem styður árangur, ábyrgð og stöðugan lærdóm.
Í vinnustaðagreiningu Gallup haustið 2025 kom fram að 95% starfsfólks var ánægt með Landsbankann sem vinnustað og 97% töldu sig hafa mjög góða þekkingu á reglum sem gilda um störf þeirra, sem endurspeglar sterka áhættumenningu. Fjölbreytt fræðsluframboð styður áfram við aðlögunarhæfni bankans í síbreytilegu samkeppnisumhverfi.
Jákvæð áhrif og fjárhagslegur styrkur
Landsbankinn er hluti af og virkur þátttakandi í umhverfi sínu, íslensku samfélagi. Við leggjum ríka áherslu á að vera jákvætt hreyfiafl um allt land og stuðla að farsælli framtíð lands og þjóðar með ábyrgri starfsemi.
Traustur rekstur hefur skilað bankanum jöfnum og góðum hagnaði og stutt við reglulegar arðgreiðslur. Samanlagðar arðgreiðslur og skattar á árinu 2025 námu 37,9 milljörðum króna.
Á undanförnum árum hefur hlutfall grænnar fjármögnunar stöðugt aukist og er nú orðið 64,2% af erlendri fjármögnun bankans. Hæfar eignir til sjálfbærra verkefna fara sömuleiðis vaxandi og falla nú rúmir 276 milljarðar króna undir sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans.
Bankinn er traustur bakhjarl íþrótta-, æskulýðs- og framþróunarstarfs um allt land og varði yfir 200 milljónum króna á árinu í um 300 styrki og samstarfssamninga af þessum toga.
Sérfræðingar bankans eru einnig áberandi í umræðunni um hagkerfið og ýmis samfélagsmál, auk þess sem mikið er lagt upp úr fræðslu um fjármál á breiðum grunni.
Árið 2025 sýndi að Landsbanki nýrra tíma eru ekki einungis orð á blaði heldur virk stefna sem skilar raunverulegri ánægju viðskiptavina, árangri í rekstri og jákvæðum áhrifum á íslenskt samfélag.