Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Meiri yfirsýn og markvissari sparnaður  

Árið 2025 fór aukin virkni á fjármálamörkuðum saman við áherslu viðskiptavina á markvissar og upplýstar fjárfestingarákvarðanir. Við lögðum áherslu á að styðja við viðskiptavini með lausnum sem hvetja til fjárfestinga, stuðla að fjárhagslegri heilsu og efla fyrirtæki og einstaklinga á öllum stigum og við hvaða tækifæri sem er. Þetta birtist í ýmsum nýjungum og virkni í eignastýringu og miðlun sem veita aukna möguleika og enn betri þjónustu fyrir viðskiptavini.  

Velta í hlutabréfum og skuldabréfum dróst saman um 7% á fjármálamarkaði en heildarvelta Landsbankans jókst um 35%, þá fyrst og fremst í skuldabréfum en einnig lítillega í hlutabréfum.  

Sterk staða í eignastýringu og miðlun  

Eignir í stýringu jukust á árinu og umsvif í verðbréfaviðskiptum héldu áfram að vaxa með aukinni notkun á stafræn lausnum og fjölbreyttara vöruúrvali fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fagfjárfesta. Alls voru 936 milljarðar króna í stýringu hjá samstæðu bankans í árslok 2025. 

Aukning milli ára:

Eignir í stýringu
5%
Stök hlutabréfakaup einstaklinga
15%
Velta í hlutabréfaviðskiptum einstaklinga
52%

Viðskiptavinir héldu áfram að tileinka sér sjálfsafgreiðslulausnir og sjálfsafgreiðsluhlutfallið var yfir 80% fyrir verðbréfaviðskipti og lífeyrissparnað í appi og netbanka í lok árs.

Áhersla á viðskiptavininn, skýr yfirsýn og skilvirk þjónusta  

Áhersla var lögð á að efla gæði og þægindi stafrænnar upplifunar í appi og netbanka með aukinni upplýsingagjöf, betri yfirsýn og skýrari framsetningu. Þetta studdi við aukna notkun sjálfsafgreiðslulausna og virkari þátttöku einstaklinga í eigin fjárfestingum.

Á árinu voru innleiddar mikilvægar nýjungar sem styrkja þjónustu við fjárfesta og fyrirtæki.

Nýjungar í stafrænum lausnum

Verðbréfagögn má nú sækja í markaðstorg bankans (API) sem gerir það að verkum að viðskiptavinir geta hlaðið verðbréfastöðum, ávöxtun safna og hreyfingum beint inn í bókhaldskerfi sín, sem einfaldar uppgjör og eykur sjálfvirkni í fjármálavinnslu.  

Kynntar voru tilkynningar um hlutabréfaviðskipti í appi, svokölluð hnipp (e. push), sem hjálpa viðskiptavinum að fylgjast með þegar viðskiptatilboðum er tekið, hafnað eða þau felld niður.  

Sterk staða og aukin þátttaka yngri viðskiptavina í lífeyrissparnaði  

Lífeyrissparnaður hélt áfram að vera sterkur þáttur í þjónustu bankans. Fjöldi nýrra samninga í viðbótarlífeyrissparnað hjá viðskiptavinum á aldrinum 18-24 ára jókst um 25% á árinu og um 150% hjá viðskiptavinum á aldrinum 16-17 ára. Þessi aukning endurspeglar vaxandi vitund um mikilvægi sparnaðar, árangur markvissrar fræðslu og aðgengilegra stafrænna lausna. Heilt yfir var aukningin 5,7% á milli ára.  

Í lok árs var gefin út ný ávöxtunarleið undir viðbótarlífeyrissparnaði Landsbankans sem fjárfestir alfarið í innlendum hlutabréfum. Þetta bætir við úrval bankans af fjárfestingarleiðum fyrir viðbótarlífeyrissparnaðinn og eykur svigrúm viðskiptavina til að móta eigin fjárfestingar. 

Farið var í stóra markaðsherferð fyrir sumarið þar sem áhersla var lögð á að kynna kosti viðbótarlífeyrissparnaðar fyrir yngri kynslóðum. Hún gekk gríðarlega vel, eins og sést á aukningu samninga hjá þeim aldurshópum. 

Sumarið er tíminn til að spara

„Í sumar keyrðum við af stað stóra markaðsherferð til að kynna kosti viðbótarlífeyrissparnaðar, þá einna helst fyrir þeim sem eru að koma ferskir inn á vinnumarkaðinn. Okkur langaði að fá fleira ungt fólk til að nýta sér þá frábæru sparnaðarleið sem viðbótarlífeyrissparnaður er. Okkur finnst mjög mikilvægt að fólk nýti sér þennan sparnaðarmöguleika strax frá upphafi, enda hefur viðbótarlífeyrissparnaður marga kosti fyrir ungt fólk.

Fræðsla sem skilar sér   

Við héldum áfram með fræðsluviðburði með áherslu á lífeyrismál, reglubundinn sparnað og netöryggi. Markmiðið er skýrt, að fleiri hafi þekkingu og sjálfstraust til að taka upplýstar ákvarðanir og nýta sér þau tækifæri sem felast í markvissum sparnaði til lengri tíma.  

Hagstæðari kjör og áframhaldandi vöruþróun  

Í september var ráðist í umtalsverða lækkun á þóknunum vegna viðskipta með sjóði Landsbréfa, sem gerir sparnað í sjóðum hagstæðari fyrir viðskiptavini bankans. Breytingin styður við reglubundinn sparnað og eykur samkeppnishæfni sjóðanna til lengri tíma.  

Horft fram á veginn mun bankinn byggja áfram á þessari sterku stöðu með persónusniðinni þjónustu, enn frekari sjálfsafgreiðslu og markvissri þróun lausna sem styðja við langtímasparnað og fjárhagslega heilsu viðskiptavina.  

Breitt sjóðaframboð og góður árangur Landsbréfa  

Rekstur Landsbréfa hf., dótturfélags bankans, gekk vel á árinu 2025. Rekstur Landsbréfa er í grófum dráttum tvíþættur, þ.e. sjóðastýring og eignastýring. Árangur sjóða ræðst alltaf að miklu leyti af markaðsaðstæðum á þeim mörkuðum sem fjárfest er á. Segja má að markaðsaðstæður á innlendum verðbréfamarkaði hafi verið krefjandi á árinu. Verðbólga lækkaði ekki eins mikið og væntingar stóðu til í upphafi árs og þó Seðlabanki Íslands hafi lækkað stýrivexti um 125 punkta á árinu var vonin sú að betur myndi takast til við að ná tökum á verðbólgu og að vextir myndu lækka meira en raun varð. Ávöxtun sjóða og eignasafna í stýringu Landsbréfa reyndist ásættanleg á árinu með tilliti til markaðsaðstæðna og eins í samanburði við keppinauta á markaði.  

Ávöxtun á íslenskum hlutabréfamarkaði var í heildina slök enn eitt árið þrátt fyrir bjartsýni í upphafi árs, á meðan erlend hlutabréf skiluðu almennt góðri ávöxtun. Skuldabréfasjóðir Landsbréfa skiluðu almennt góðri ávöxtun í samanburði við keppinautana og sömu sögu má segja um blandaða sjóði Landsbréfa.  

Á sviði sérhæfðra fjárfestinga gekk rekstur framtakssjóða, nýsköpunarsjóða og veðlánasjóða almennt mjög vel. Á árinu hófst rekstur tveggja nýrra framtakssjóða, en það eru Horn V slhf., sem er 15 milljarða framtakssjóður sem mun fjárfesta í íslensku atvinnulífi, og SÁ Horn slhf. sem er sjóður um sameiginlega fjárfestingu nokkurra öflugra fagfjárfesta í Styrkási hf. Í lok árs var ákveðið að framlengja líftíma framtakssjóðsins Landsbréf – Icelandic Tourism Fund slhf. um tvö ár. 

Í árslok ráku Landsbréf alls 43 sjóði, bæði verðbréfasjóði og sérhæfða sjóði. Sjóðaframboð Landsbréfa er mjög breitt og þar er hægt að finna fjárfestingarkosti sem henta vel flestum fjárfestum.