Vefkökur
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.
Nánar um vefkökur
Ánægðir viðskiptavinir
Ánægðir viðskiptavinir
Við leggjum áherslu á að vera þar sem viðskiptavinir eru, með þjónustu sem er einföld, aðgengileg og áreiðanleg. Hjá okkur fá viðskiptavinir aðgang að framúrskarandi stafrænum lausnum en geta um leið fengið persónulega þjónustu hjá starfsfólki í öflugu þjónustuveri og langstærsta útibúaneti landsins.

Auðveldari fjármál og snjallari lausnir
Við héldum áfram að auka gæði og öryggi stafrænnar þjónustu bankans við einstaklinga og fyrirtæki á árinu. Splunkunýr netbanki fyrirtækja leit dagsins ljós og ýmsum nýjungum var bætt við Landsbankaappið sem gagnast jafnt einstaklingum, fjölskyldum og fyrirtækjum.

Aðgengileg, örugg og mannleg fjármálaþjónusta
Við viljum einfalda líf viðskiptavina með aðgengilegri, öruggri en jafnframt mannlegri fjármálaþjónustu. Við bjóðum framúrskarandi stafrænar lausnir en hjá okkur geta viðskiptavinir líka fengið persónulega þjónustu og ráðgjöf, hvort sem er hjá öflugu þjónustuveri eða starfsfólki í útibúum um allt land.

Alhliða þjónusta við fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum
Landsbankinn er stærsti fyrirtækjabanki landsins með um 40% hlutdeild bankakerfisins á Íslandi í útlánum til fyrirtækja og um helming af útlánum í mikilvægum atvinnugreinum á borð við sjávarútveg og byggingariðnað. Útlán til fyrirtækja héldu áfram að aukast á árinu og munu bráðlega kljúfa þúsund milljarða múrinn.

Meiri yfirsýn og markvissari sparnaður
Árið 2025 fór aukin virkni á fjármálamörkuðum saman við áherslu viðskiptavina á markvissar og upplýstar fjárfestingarákvarðanir.