Vefkökur
Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.
Nánar um vefkökurÁhersla á gagnsæja upplýsingagjöf
Við gerð sjálfbærniuppgjörs Landsbankans 2025 er horft til einfaldaðra draga að sjálfbærnistaðli Evrópusambandsins (ESRS) sem kom út í nóvember 2025. Unnið er að því að uppfylla kröfur ESRS að fullu.

Fjallað er um samstæðuna í sjálfbærniuppgjöri bankans út frá sömu forsendum og ársreikningur bankans fjallar um samstæðuna. Undir loftslagsbókhaldið fellur rekstur dótturfélagsins Landsbréfa á húsnæði og bílum, ferðir starfsfólks til og frá vinnu og ferðir starfsfólks vegna vinnu. Mannauðstölur fjalla eingöngu um starfsfólk Landsbankans. Landsbréf birta sjálfbærniupplýsingar sínar á sama tíma og ársreikning sinn.
Árið 2025 tók Landsbankinn við nýju dótturfélagi, tryggingafélaginu TM tryggingar hf. Sjálfbærniuppgjör TM er birt í sér kafla í sjálfbærniuppgjöri Landsbankans og fjallar um tímabilið 28. febrúar til 31. desember 2025 sem er tímabilið sem TM hefur verið hluti af samstæðu Landsbankans. Gera má ráð fyrir að TM verði hluti af loftslagsbókhaldi Landsbankans á samstæðugrunni í framtíðinni líkt og Landsbréf.
Landslag sjálfbærniupplýsingagjafar tekur stöðugt breytingum og Landsbankinn leggur áherslu á að bregðast hratt og örugglega við til að tryggja bæði hlítni við lög og reglur og til að stuðla að öryggi og gagnsæi.
Landsbankinn styður áfram við hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna, UN Global Compact, og fylgir viðmiðum þess. Við skilum einnig framvinduskýrslu til hnattræns samkomulags SÞ á vefsvæði verkefnisins.
Sjálfbærniuppgjör Landsbankans gegnir hlutverki framvinduskýrslu til Viðmiða um ábyrga bankaþjónustu (PRB).